MóselEinangrunarstöð gæludýra
ENBóka pláss
Mósel / Flug
Ferðin til Mósels

Með gæludýrið í flug

Góður upphafspunktur þegar þú skipuleggur ferðina til Mósels. Hér finnurðu flugfélög, tengiliði og þá möguleika sem vert er að kanna.

Flugfélög og tengiliðir

Finndu leið sem hentar ykkur

Cabin · Farangursrými

Finnair

Hundar og kettir geta ferðast í farþegarými, að hámarki 8 kg með tösku, eða í farangursrými með viðeigandi ferðabúri. Hafðu samband til að bóka dýrið og staðfesta pláss á þínu flugi.

Cabin · Staðfesta þarf Íslandsflug

Air Canada

Air Canada býður almennt flutning lítilla hunda og katta í farþegarými í tösku undir sæti. Þetta staðfestir ekki flutning til Íslands. Fáðu skriflega staðfestingu fyrir leiðina þína, til dæmis Toronto–Keflavík, áður en þú kaupir miða.

Farangursrými · Staðfesta þarf Íslandsflug

Air China

Air China býður almennt flutning hunda og katta í farangursrými á völdum flugum með samþykki fyrirfram. Flutningur til Íslands er ekki staðfestur hér. Hafðu samband um leiðina, flugvélina og möguleg tengiflug áður en bókað er.

Símanúmer eru merkt eftir landi eða skrifstofu. Gjaldfrjáls alþjóðanúmer virka ekki frá öllum löndum; á tengiliðasíðu félagsins má finna aðra leið. Neos vísar bókunarfyrirspurnum um dýr á netspjall sitt.

Fraktflutningur og pet agent

Aðstoð við bókun fraktflutnings

Pet agent sérhæfir sig í að skipuleggja flutning dýra og getur aðstoðað við leiðaval, kröfur um búr og fraktbókun. Bókanir á eftirfarandi fraktflutningum þurfa að fara í gegnum pet agent.

Fraktflutningur · Pet agent

Lufthansa

Hafðu samband við pet agent til að bóka flutning dýrsins með Lufthansa Cargo.

Fraktflutningur · Pet agent

Odin Cargo / Óðinn

Óðinn Cargo býður flutning frá Billund til Keflavíkur. Hafðu samband við pet agent til að bóka flutning dýrsins.

Fraktflutningur · Pet agent

airBaltic

Hafðu samband við pet agent til að bóka fraktflutning dýrsins með airBaltic.

Fraktflutningur · Pet agent

LOT Polish Airlines

Hafðu samband við pet agent eða flutningsmiðlara til að bóka flutning dýrsins með LOT Cargo og staðfesta möguleika á flugi til Íslands á þeim degi sem óskað er eftir.

Tilbúin að skipuleggja komuna?

Skoða komudaga ↗Hafa samband við Mósel ↗

Upplýsingar yfirfarnar 16. október 2026. Reglur og flugáætlanir geta breyst.